Færslur: 2010 Júlí26.07.2010 13:32Mærudagar 2010
Skrifað af Þorgeir 21.07.2010 00:17Elsti vélbátur islands
Sæll Þorgeir. Sendi þér hérna myndir eins og ég lofaði. Áttæringurinn Vigur Breiður er semsagt að fara á flot eftir 10 ára notkunarleysi, hann var notaður síðast árið 2000. Breiður hefur verið í Vigur frá því að elstu menn muna og eru til heimildir um hann frá því 1829, og talið er að hann sé smíðaður fyrir 1800. Honum hefur alla tíð verið haldið vel við. Féð í Vigur var alltaf flutt upp á meginlandið á sumrin og var Breiður notaður til þess, og var hægt að flytja allt að 70-80 fjár á honum í einu. Gestur frá Vigur, var smíðaður árið 1906 fyrir séra Sigurð Stefánsson bónda og prest í Vigur. Hann var notaður til fiskveiða og til aðdrátta fyrir Vigurbændur. Við fjárflutninga og annarskonar flutninga á Breið var það alltaf Gestur sem dró Breið. Árið 1988 fékk Byggðasafn Vestfjarða Gest að gjöf frá Baldri og Birni fyrrverandi Vigurbændum og árið 2003-2004 var hann endurbyggður. Gestur er elsti vélbátur sem varðveist hefur á Íslandi. Skrifað af Þorgeir 19.07.2010 01:52Meira um MakrilveiðarÞórður R Sigurðsson tók á móti endanum © mynd Óskar P Friðriksson 2010 Kampakátir áhafnarmeðlimir ásamt þórði © mynd Óskar P Friðriksson Krapaður Makrill um borð i Dala Rafni VE 508 Mynd Óskar P Friðriksson Kapmakátur með búbótina © mynd Óskar P Friðriksson "Pólverjarnir" komu allir að landi í morgun með makríl, Dala Rafn var með 60 kör eftir fjögur hol. Menn eru ánægðir með árangurinn og líst vel á framhaldið. Þeir kæla fiskinn með krapi, þannig að hitastigið er undir frostmarki þegar makrílnum er landað. Dala Rafn landar sínum afla hjá Ísfélaginu. Eins og sjá má á myndunum tók Þórður Rafn Sigurðsson útgerðarmaður á móti skipi sínu og fylgdist vel með þegar fyrsta karið kom upp á bryggju.allar myndir og teksti Óskar Pétur Friðriksson www.eyjafrettir.is Skrifað af Þorgeir 19.07.2010 01:20Makrilveiðar úr EyjumGert klárt á Makrilveiðar © mynd Óskar P Friðriksson 2010 Áhöfnin klár i slaginn © mynd Óskar P Friðriksson Allt að verða klárt til brottfarar © mynd Óskar P Friðriksson Skipstjórinn á Vestmannaey VE 444© Mynd Óskar P Friðriksson Nú snýst allt um makríl, "pólverjarnir" Vestmannaey, Bergey og Dala Rafn eru allir byrjaðir að veiða þennan fisk. Á þessum myndum eru skipverjar á Vestmannaey að gera sig klára.og hefur veiðin á Skrifað af Þorgeir 09.07.2010 14:56Ný Þórunn Sveinsdóttir VeÞórunn Sveinsdóttir Ve © Mynd Þórarinn S Guðbergsson Við bryggju i Skagen © mynd Þórarinn S Guðbergsson Grandaravindurnar © mynd Þórarin S Guðbergsson Séð frameftir Trolldekkinu © mynd Þórarinn S Guðbergsson Skutur Þórunnar Sveinsdóttur Ve © mynd Þórarinn S Guðbergsson 2010 Hin nýja Þórunn Sveinsdóttir sem að hefur verið i smiðum i Gdansk Pólandi var dregin til Skagen i Danmörku nú nýverið skipið er smiðað fyrir útgerðarfyrirtækið Ós i Vestmannaeyjum og er 39.95 metrar á lengd og er 11.20 á breidd og mun verða afhennt i Nóvember Skrifað af Þorgeir 07.07.2010 10:29Góður afli frystitogara Brims og SamherjaBjörgvin EA 311 Mynd þorgeir Baldursson 2010 Björgvin EA 311 skip Samherja kom úr Barentshafi með góðan afla alls er aflinn um 735 tonn uppúr sjó aflaverðmætið um 200 milljónir túrinn mun vera um 34 dagar og er uppistaðan þorskur Oddeyrin EA 210 kom einnig til hafnar i morgun með góðan afla 205 tonn uppúr sjó uppistaðan Grálúða aflaverðmæti um 130 milljónir túrinn tók 29 daga Kleifaberg, frystitogari Brims hf., er á leiðinni
heim úr Barentshafi eftir velheppnaðan túr. Að sögn eins skipverjans
nam aflinn um 1.000 tonnum upp úr sjó, þar af voru um 700 tonn unnin í
roðlaus og beinlaus flök. Taldi hann í samtali við Fiskifréttir nokkuð
víst að aldrei áður hefði svo mikill afli farið í slíka vinnslu í
íslenskum togara í einum túr.
Að minnsta kosti er víst að gríðarleg vinna liggur að baki slíkum afköstum. Aflaverðmæti úr túrnum er áætlað um 300 milljónir króna. Veiðarnar fóru fram í rússneskri lögsögu Barentshafs, austan við Gráa svæðið svokallaða. Búist er við skipinu heim nú í vikulokin og hefur túrinn þá tekið rúma 28 daga, þar af tekur siglingin fram og til baka tæpa 10 daga í heild. Aflinn var nær eingöngu þorskur. Því má svo bæta við til gamans að áhöfnin á Kleifaberginu hefur lengi haldið úti hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust og gert garðinn frægan bæði með tónleikahaldi og útgáfu geisladiska með tónlist sinni. Skrifað af Þorgeir 02.07.2010 20:11Nýji Báturinnhttp://www.strand-craft.com/ Hvernig list ykkur á nýja bátinn hann er 38 metrar með 14000 hestafla mótor billinn er V 12 880 hestöfl Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1326 Gestir í dag: 41 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060742 Samtals gestir: 50944 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 16:04:29 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is